![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Home |
Version |
utgave |
útgáfa |
Gallery |
Links |
us |
|
|
|
AÐ KENNA HUGSUN Höfundar þessarar bókar standa í þeirri trú að þegar nemandi einbeitir sér að lausn vandamáls þá muni sú reynsla gagnast honum best ef hún felur í sér meiri ánægju en erfiði. Við teljum að ein góð leið að því marki sé að segja sögu sem nemandinn getur lifað sig inn í, sögu með trúverðugum persónum. Söguhetja sem stjórnast ekki af neinni annarri tilfinningu en forvitni er ótrúverðug og bækur sem eru aflestrar eins og löng röð af greindarprófum gera rökhugsun að gleðisnauðu púli. Þegar nemandinn hinsvegar hefur áhuga og finnur til ánægju um leið og glímt er við að leysa vandamál sem krefjast skapandi hugsunar og reyna á ímyndunaraflið, horfir málið öðruvísi við. Þá þroskar hún með sér færni sem yfirfærist, þannig að hún kemur að beinum notum í lífinu. Í bókinni sem hér má lesa látum við reyna á þessar kenningar okkar. Samkvæmt okkar reynslu hentar bókin vel aldrinum níu ára. Nemandinn tekur þátt í því með sögupersónum að finna skapandi lausnir á vandamálum, ýmist með þvi að lita, skrifa eða teikna lausnir sínar. Síðastnefnda aðferðin hefur reynst sérlega gefandi. Þegar nemandinn teiknar lausnir sínar gefur hann ímyndunaraflinu lausan tauminn og finnur svör sem oft vekja undrun og aðdáun fullorðinna. Nemandinn verður sjálfur sögupersóna í bókinni. Hann teiknar sjálfsmynd sína í eyðu, segir skoðun sína og kemur aðalpersónu bókarinnar til hjálpar með góðum ráðum og hughreystingum. Flest vandamálin eru þess eðlis að margar lausnir koma til greina. Þetta á einnig við um siðferðileg álitaefni; mismunandi nemendur munu finna mismunandi lausnir sem geta komið að góðum notum. Þegar vinnu við bókina er lokið er hún að verulegu leyti orðin höfundarverk nemandans sjálfs. Þess vegna er henni boðið að skrifa nafn sitt á forsíðu sem þriðji höfundur bókarinnar. Í þessari fyrstu bók, (hugmyndin er að þær verði fimm), þarf að finna ýmsar aðferðir til að senda skilaboð. Annað viðfangsefni er hve erfitt það getur verið fyrir börn að segja frá vandamálum sínum og tjá tilfinningar. Í næstu bók, sem titluð er HUGARFLUG, Bók 2 FJÁRSJÓÐUR, munu lesendur nýta sér ýmsar vísbendingar í leit að fjársjóði. En þeir uppgötva einnig að dýrmætasti fjársjóðurinn er vinátta. Við teljum okkur ekki hafa lokið við að umskrifa fyrstu bókina, heldur leitumst enn við að betrumbæta hana með þeirri bestu aðferð sem við þekkjum. Það er að fá viðbrögð barnanna sjálfra. Í þessari viðleitni vildum við fegnir þiggja hjálp þína. Þegar barn þitt, eða nemandi hefur lokið vinnu við bókina vildum við gjarnan að þú segðir okkur hvaða blaðsíður fengu óskipta athygli og hverjar þóttu leiðinlegar. Ef þú telur þig vita hvers vegna, vildum við gjarnan heyra það líka. Höfundar vilja þakka Grunnskóla Mýrdalshrepps fyrir aðstoð við gerð bókarinnar. Kær kveðja, Gunnar Halldórsson Guðvarður Halldórsson ![]() The best site if you're a teacher in need of material to teach. | Forsíða | Innkápa | Bls. 1 | Bls. 2 | Bls. 3 | Bls. 4 | Bls. 5 | Bls. 6 | Bls. 7 | Bls. 8 | Bls. 9 | Bls. 10 | Bls. 11 | Bls. 12 | Bls. 13 | Bls. 14 | Bls. 15 | Bls. 16 | Bls. 17 | Bls. 18 | Bls. 19 | Bls. 20 | Bls. 21 | Bls. 22 | Bls. 23 | Bls. 24 | Bls. 25 | Bls. 26 | Bls. 27 | Bls. 28 | Bls. 29 | Bls. 30 | Bls. 31 | Bls. 32 | Aftari Innkápa | Baksíða | | Return Home | English Version | Norsk utgave | Íslensk útgáfa | Download PDF | Picture Gallery | Great Links | Email us | |
||
